Apple Mail

Byrjaðu á því að opna Mail forritið. Hægt er að opna það með flýtihnappnum niðrí í valmyndastikunni eða með því að fara í Applications - Mail. Síðan er farið í Mail og þar í Preferences. Því næst skal velja Accounts og þá birtist þessi gluggi.

Hérna skal velja POP í Account type og slá síðan inn eftirfarandi upplýsingar. Description er heitið á pósthólfinu, næst kemur netfangið, því næst kemur fullt nafn. Í Incoming Mail Server fer póstþjónn Vodafone sem er mail.internet.is. Einnig þarf að slá inn notendanafn og lykilorð.


Næst er smellt á Server setting og þá kemur þessi mynd upp. Setjið inn Outgoing mail serverinn hjá Vodafone en hann er mail.internet.is. Server port skal vera 25 og það skal vera valið None í Authentication.


Síðan er smellt á Ok og þegar account glugganum er lokað spyr forritið hvort að vista eigi stillingar. Þar er smellt á Save.
 
 
 
Netvistun ehf - Hamraborg 20a - 200 Kópavogi - Sími 414-5500 - netvistun@netvistun.is