Eyðublaðakerfi
Eyðublaðakerfið okkar gerir hverjum sem er kleyft að búa til ýmis eyðublöð. Hægt er að nota það til dæmis til að búa til atvinnuumsóknir, tilboðsblöð, styrkjabeiðnir, skráningar í viðburði og/eða námskeið. Þau sendast svo í tölvupósti á umbeðið tölvupóstfang.
Eiginleikar:
- Hægt að skilgreina allskyns reiti: texta, "drop-down box", "checkbox", textareit
- Hægt að skilgreina hvaða reitir eru nauðsynlegir upp að vissu marki
- Hægt að ákveða hvaða texti kemur fyrir og eftir umsóknina.
Kerfið er samt ákveðnum takmörkunum háð, sérstaklega hvað varðar virkni, því það er eingöngu hægt að nota það til að senda póst á eitt tölvupóstfang og ekki hlaupið að því ef maður vill einhverja auka virkni í kerfið.
