Hestakerfi

Hróður íslenska hestsins eykst með hverjum deginum  jafnt hérlendis sem og erlendis og hefur fagmennska innan atvinnugreinarinnar  aukist gríðarlega undanfarin ár. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt fyrir íslenska hestamenn að kynna starfssemi sína og koma sínum afurðum á framfæri.  Internetið hefur verið afar mikilvægur hlekkur í markaðssetningu íslenska hestsins og algengt að fyrstu tengsl milli kaupanda og seljanda myndist á netinu.

Í gegnum tíðina hafa fjölmörg hestabú komið að máli við okkur í leit að betri lausnum fyrir sinn rekstur.  Í framhaldi af því hafa sérfræðingar okkar hannað hestakerfi sem er sérsniðið að þessari atvinnugrein.

Eiginleikar

Innan kerfisins er hægt að kynna sérstaklega hvert hross fyrir sig með upplýsingum svo sem eins og ættartölu, sköpulag,  hæfileika og kynbótamat. Hægt er að skipta hrossunum í flokka og er sérstaklega tekið tillit til söluhrossa. Hægt er að senda fyrirspurn varðandi hrossin, hafa fjölmargar myndir og jafnvel myndskeið.

Sala á folatollum

Nú höfum við jafnframt hannað "stóðhestakerfi" sem gerir kleift að panta folatolla undir stóðhesta.  Kerfið heldur utan um allar nauðsynlegar upplýsingar og getur skilað rafrænt skýrslum til Búnaðarambands Íslands. Kerfið býður einnig uppá þann möguleika að taka á móti greiðslum fyrir pantaða tolla.

Pantið kynningu og fáið allar upplýsingar um þessa frábæru heildarlausn fyrir hrossabúið þitt.

Verðið kemur þér á óvart.

Image Image

 
 
 
Netvistun ehf - Hamraborg 20a - 200 Kópavogi - Sími 414-5500 - netvistun@netvistun.is