Netposi
Mjög algengt er í dag að fólk vilji greiða fyrir vörur eða þjónustu með greiðslukorti. Margir hafa verið að nota símgreiðslur til að sinna slíku en í dag er það frekar óöruggt og óprúttnir aðilar geta oft nýtt sér það í meiriháttar kreditkortasvindl. Þessvegna horfa margir til veflausna til að greiðslur geti farið fram á öruggan hátt.
Til þess þarf yfirleitt að setja upp sérstakt pöntunarkerfi og greiðslugátt og oft þarf þá að forrita mikið í kring um það til að mæta þörfum hvers og eins.
Ný lausn: Netposi
Við bjóðum núna nýja lausn hvað þetta varðar, svokallaðan Netposa. Þetta er mjög einfaldur hugbúnaður sem virkar gegnum vefsvæði. Með honum getur þú útbúið ákveðna upphæð sem þú getur síðan útbúið tengil á og sent á viðskiptavin.
Hann fær síðan þennan tengil í hendurnar og fær með honum uppgefna upphæð ásamt lýsingu og getur síðan greitt á öruggan hátt rafrænt gegnum netið.
Hentar vel fyrir...
Þetta hentar afar vel fyrir þá sem ekki eru með fastar upphæðir eða eru með flókna verðútreikninga þar sem oft er verið að útbúa tilboð. Oftast notað af fyrirtækjum í ferðageiranum, námskeiðahaldi og þar sem mikið af tilboðsverkum eru unnin.
Greiðslugátt
Við notum greiðslugátt frá Kortaþjónustunni fyrir netposann.
