Tenging í bókhalds- og birgðakerfi

Algengt er að mikil hagræðing geti skapast með því að tengja bókhalds- og birgðakerfi við heimasíðu. Þá er oft hægt að birta birgðastöðu, verð og aðrar upplýsingar tengdar vörunum beint á netinu í stað þess að viðskiptavinir þínir þurfi að hringja til að athuga það.

Þetta hentar auðvitað sérstaklega vel ef ætlunin er að reka netverslun.

Móttaka gagna

Frá okkar enda getum við móttekið gögnin á marga vegu, meðal annars:

  • Tekið við gögnum gegnum HTTP fyrirspurn
  • Tekið við gögnum gegnum FTP
  • Sótt gögn gegnum HTTP fyrirspurn
  • Sótt gögn gegnum FTP

Gögnin eru oftast móttekin í XML formi en geta einnig verið í CSV ef þörf þykir.

Tíðni uppfærslna

Hægt er að láta birgðakerfi uppfærast á 24 tíma fresti, 12 tíma fresti eða 1 tíma fresti. Algengast er á sólarhrings fresti.

 
 
 
Netvistun ehf - Hamraborg 20a - 200 Kópavogi - Sími 414-5500 - netvistun@netvistun.is