Uppfærsluþjónusta

Þú hringir - við breytum

Allir vefir sem við setjum upp koma uppsettir með vefumsjónarkerfi sem hægt er að nota til að breyta og uppfæra flest allt efni á vefsíðunni. Þrátt fyrir það eru samt sem áður margir sem kjósa frekar að vera ekki beint með puttana í því sjálfir en hafa samt ekki starfsmann innandyra sem geta séð um þessi mál.

Eitt af því sem viðskiptavinir okkar eru hvað ánægðastir með er uppfærsluþjónusta okkar. Með henni geta viðskiptavinir breytt heimasíðunni sinni með einföldu móti með því að senda okkur tölvupóst, hringja eða fylla út eyðublað.

Sparaðu tíma og peninga

Þó það séu ekki nema litlar breytingar eins og breytingar á símanúmeri, opnunartíma, skipta út myndum, uppfæra verðskrá osfrv þá er afar þægilegt að geta gripið til þessa og verkbeiðnir eru þá oftast afgreiddar samdægurs.

Vinnslutími

Séu beiðnirnar einfaldar þá gefum við okkur almennt 2 virka daga til að bregðast við ef þær eru sendar á vinna@netvistun.is - en oftast taka þær minni tíma.

Þessi þjónusta er innifalin í Gullþjónustu okkar og í Vefstjóranum.

 
 
 
Netvistun ehf - Hamraborg 20a - 200 Kópavogi - Sími 414-5500 - netvistun@netvistun.is