Vefsíðugerð

Metnaður Netvistunar frá upphafi hefur verið fagleg og árangursrík hönnun í vefsíðugerð. Með einfaldleika og þægindi að leiðarljósi hafa sérfræðingar Netvistunar aðlagað og íslenskað vefumsjónarkerfi sem gerir uppfærslur og innsetningu efnis einstaklega léttar og þægilegar fyrir notendur.

Viðskiptamannahópur Netvistunar hefur farið ört vaxandi undanfarin misseri og í dag þjónustar Netvistun yfir 1200 vefi. Það gerir Netvistun að einu stærsta vefsíðufyrirtæki landsins. Eins og gefur að skilja eru þarfir og óskir viðskiptavina okkar ólíkar og leggjum við mikla áherslu á að mæta þessum ólíku kröfum til vefsíðan skili sem bestum árangri.

Við bjóðum því viðskiptavinum okkar upp á tvær einfaldar leiðir, annars vegar staðlaðar vefsíður og hins vegar sérhannaðar vefsíður.

Staðlaðar vefsíður henta þeim viðskiptavinum sem vilja einfalda og ódýra lausn fyrir sína starfssemi. Þessar vefsíður byggja á grind sem er fyrirfram ákveðin en gefur samt svigrúm fyrir viðskiptavininn til að setja sitt mark á útlitið.

Sérhannaðar vefsíður bjóða hins vegar upp á endalausa möguleika og hafa þess vegna mjög mismunandi útlit og virkni allt eftir því hver þarfir, óskir og væntingar viðskiptavinanna eru.

 

 
 
 
Netvistun ehf - Hamraborg 20a - 200 Kópavogi - Sími 414-5500 - netvistun@netvistun.is